Listin að vera á milli
Art in Translation er alþjóðleg ráðstefna sem nú er haldin í Reykjavík í þriðja sinn. Það eru Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands og Háskólinn í Manitoba, auk Norræna hússins, sem standa að ráðstefnunni.
Ráðstefnuna sækja listamenn og fræðimenn frá ýmsum löndum og fjalla þeir um listir og ritlist frá ótal sjónarhornum, en þema ráðstefnunnar að þessu sinni er listin að vera á milli (The Art of Being In Between).
Aðalfyrirlesari er Amy Tan, höfundur bókanna Leikur hlæjandi láns og Kona eldhúsguðsins. Aðrir lykilfyrirlesarar eru Roger Allen (sérsvið: arabískar bókmenntir og þýðingar), Matthew Rubery (sérsvið: lestrarvenjur, hljóðbækur, blindraletur) og David Spurr (sérsvið: samanburðarbókmenntir, m.a. með áherslu á arkitektúr í bókmenntum).
Listamannaþríeyki, sem samanstendur af Bjarka Bragasyni, Claudiu Hausfeld og Hildigunni Birgisdóttur, flytur opnunarerindi ráðstefnunnar fimmtudaginn 18. september. Fjallar það um skilgreiningar á eiginleikum hluta og ólíkar leiðir til að rannsaka stað. Verk þeirra er hægt að sjá í Hverfisgalleríi til 4. október 2014.
Erindin á ráðstefnunni eru afar fjölbreytt og fara fram í mörgum málstofum. Fjallað verður um tónlist, teiknimyndasögur, bíómyndir, videólist, myndlist og gjörningalist, bókmenntir og náttúru á breiðum grunni auk þess sem hægt verður að sjá listgjörninga.
Á meðal margra spennandi erinda mætti nefna umfjöllun Olgu Holowniu um Múmínálfana, erindi Viðars Halldórssonar um persónu Sögu Norén í norrænu spennuþáttunum Brúnni og samanburð Eran Guters á kvikmynd Wim Wenders, Wings of Desire og ljóðum Rainers Maria Rilke.
Sjá heildardagskrá ráðstefnunnar á vef hennar.
Hægt er að kaupa passa á ráðstefnuna eða miða á staka fyrirlestra. Passinn kostar 13.700 krónur og stakur miði 1.000 krónur.
Einnig verður opinn viðburður utan dagskrár á opnunardegi ráðstefnunnar, fimmtudaginn 17. september. Skáldin Mazen Maarouf og Heiðrún Ólafsdóttir lesa úr verkum sínum í Stúdentakjallaranum kl. 18:30.
Amy Tan í Hörpu
Amy Tan heldur erindi um lífshlaup sitt og verk föstudaginn 19. september kl. 20 í Silfurbergi í Hörpu. Jafnframt mun hún taka við spurningum úr sal.
Miðasala fer fram á harpa.is og kostar miðinn 2000 krónur. Miðinn er innifalinn í ráðstefnupassa.
Forlagið gefur út bækur Amy Tan á íslensku og verða þær til sölu fyrir framan Silfurberg fyrir og eftir viðburðinn og mun höfundurinn árita bækurnar að erindinu loknu.
Það eru Norræna húsið, Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Konfúsíusarstofnun Norðurljós sem styðja við heimsókn Amy Tan til Íslands.